Þrenna vikunnar: Könnun eða raun? Geturðu meira? Takmarkalaus snilld

Þrenna vikunnar: Könnun eða raun? Geturðu meira? Takmarkalaus snilld 150 150 Freyr

1-Könnun eða raun?

Mundu: Kannanir eru bara það, kannanir. Eða eins og Sir David Ogilvy sagði. „​Fólk nær ekki hugsunum utanum líðan sína, segir ekki það sem það hugsar og gerir ekki það sem það segir!“​ Hverju er þá að treysta? Nú, því sem fólk gerir! Skoðaðu það, greindu, mældu. Ef alvöru peningar skipta um hendur, atkvæði greidd, þá er það raunverulegt, annars bara könnun. Hverju treystir þú?

2-Geturðu meira?

Gömul mýta segir að við notum bara 10% heilans. Það breytir ekki því að við getum flest margfaldað það sem við náum að afreka. Trixin: Lotubundin vinna, leiser skarpur fókus og að henda efasemdum um eigin getu út í hafsauga! Eða eins og David Goggins segir. Þegar hausinn segir þér að nú sé nóg komið, þú getir ekki meir, rífðu þig þá í gang, þú átt enn góð 60% eftir á tanknum!

3-Takmarkalaus snill

Þolirðu ekki ramma? Takmarkanir? Hví? Endaleysa er ónýti. Uppspretta kæruleysis. Nýjungar spretta úr þrengingum. Styttu textann. Þrengdu rammann. Minnkaðu tímann. Auktu við gæðin. Sýndu snilldina!

Freyr

Freyr Ólafsson stjórnendaráðgjafi og eigandi Stöku ehf

All stories by: Freyr

Leave a Reply

Your email address will not be published.

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

%d bloggers like this: