Þrenna vikunnar: 1001 afsökun, fulltrúi djöfulsins, mínútur, orð og virði
Þrenna vikunnar: 1001 afsökun, fulltrúi djöfulsins, mínútur, orð og virði https://stakaconsulting.com/wp-content/themes/corpus/images/empty/thumbnail.jpg 150 150 Freyr Freyr https://secure.gravatar.com/avatar/6fc7350236567ba89080c6738b689db3?s=96&d=mm&r=g- Freyr
- no comments
1 – Þúsund og ein afsökun
Ég hef átt betri vikur, magapest, allt í gangi á öllum vígstöðvum. Átti til 1000 afsakanir til að færa þér ekki þessa Þrennu vikunnar. Kom þá í hug saga sem ég heyrði af miklum meisturum, Kára Jóns, afreksþjálfara Ármenninga og Íþróttasambands fatlaðra og hans skjólstæðingi Patreki, spretthlaupara með meiru. Patti var eitthvað aumur í upphafi æfingar og spilaði út „blinda kortinu“ sem afsökun, enda sannarlega löglega blindur. Kári hallaði sér að Patta og sagði á sinn hlýja og hvetjandi hátt: „Patti minn, það eru allir með 1000 afsakanir, þú ert bara með 1001“. Ég þarf ekki að nefna að Patti skilaði rúmlega sínu á þeirri æfingu sem öðrum.
2 – Fulltrúi djöfulsins
Hver er fulltrúi djöfulsins við þitt borð? Tíundi Ísraelinn? Sá sem hristir upp í hópnum. Kemur með mótrökin, þessa hollu sýn sem fær okkur annað hvort til að sannfærast um að ákvörðunin sé sannarlega rétt, eða efast nóg til að skipta um skoðun.
3-Mínútur, orð og virði
Er eitthvað vit í því að telja (og selja) mínútur í „business“. Á stundum held ég það sé álíka gáfulegt og að meta gagnið af pistlum í fjölda orða. Hvað ertu að láta frá þér? Hvað stendur eftir? Hvers virði er það?
Related
- Posted In:
- Þrenna vikunnar
This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.
Leave a Reply