Þrenna vikunnar: Hamingjudagar, framúrskarandi og blessaður tölvupósts blundurinn
Þrenna vikunnar: Hamingjudagar, framúrskarandi og blessaður tölvupósts blundurinn https://stakaconsulting.com/wp-content/themes/corpus/images/empty/thumbnail.jpg 150 150 Freyr Freyr https://secure.gravatar.com/avatar/6fc7350236567ba89080c6738b689db3?s=96&d=mm&r=g- Freyr
- no comments
Hamingjudagar
Sem unglingur gekk ég með þá grillu í höfði að þriðjudagar væru óhappadagar. Líkt og ég væri keyrður í skólann á Hvolsvelli til þess eins að eitthvað kæmi uppá. Ég hlustaði náið eftir hnjóðsyrðum í minn garð, óheppni og almennum leiðindum. Því nánar sem ég hlustaði, því betur hélt reglan. Þriðjudagar voru þolraun, en þó aðeins jafn lengi og ég trúði á „regluna“. Sagði ekki Guðni Gunnarsson, „allt sem þú veitir athygli vex og dafnar“. Líklega að hluta skylt því sem sálfræðingar kalla staðfestingarskekkju (e. confirmation bias).
Þökk sé þessari reynslu vinn ég nú með hamingju- og heppnisdaga, alla daga! …og þvílíkt sem lánið leikur við mig, alla daga!
Framúskarandi
Skyldu margir skara framúr vegna vissunnar um að vera fremstir allra í flokki? Eða hægir mögulega mest á farmförunum við vissuna um að engra bætinga sé þörf til að skara framúr?
Blessaður tölvupósts-blundurinn
Margir segja að blundur sé bölvun, you snooze you lose. Ekki ég, ég blunda án samviskubits og mæli með, alla daga! Sérstaklega mæli ég með tölvupóst-blundum. Háklassa póst-hugbúnaður eins og Spark (fyrir makka), Frontapp (fyrir teymi), eða Boomerang viðbótin í Gmail bjóða upp á brilljant blundi. Með þessum tólum get ég sent póst og fengið áminningu ef ekkert svar hefur borist innan segjum 2ja daga. Þá get ég valið að pósturinn fari út þegar ég tel líkegasta til að hitta viðtakandann vel fyrir, t.d. eftir að viðkomandi er nývaknaður að morgni, eftir góðan blund, nú eða í næstu viku ef viðkomandi bað mig um að hafa samband þá. Pósturinn fær leyfi til að lúra í úthólfinu þangað til.
ps. Outlook er ekki alveg jafn lipurt, en þú getur samt blundað póstinn, sjá hér nú eða frestað útsendingu, sjá hér.
Related
- Posted In:
- Þrenna vikunnar
You might also like
This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.
Leave a Reply